Heimkoman

Sérstæð sakamál Sherlock Holmes voru ráðin í bíóhúsum borgarinnar og þar með varð gátan leyst og hægt var að halda heim á leið eftir góða daga í höfuðborginni. Fjöllin höfðu vakað meðan Vertinn var fjarverandi og haldið verndarhendi yfir byggðum á vesturslóð. Tunglskinið sveipaði firðina í Ísafjarðardjúpi sérkennilegri birtu kvöldhúmsins og fuglinn í fjörunni hallaði undir flatt er títtnefnd ók á löglegum hraða á beinum og breiðum veginum á leiðinni heim. Aðdráttarafl náttúrunnar var allsráðandi og það var gott að koma heim í faðm æskustöðvanna og finna ilminn af hreina og tæra sjávarloftinu. Börnin voru öll skilin eftir í höfuðborginni og því er rólegt í kotinu um þessar mundir en verkefnin ærin og gott að hafa nóg fyrir stafni. Með hækkandi sól aukast umsvifin í húsi sorgar og gleði enda brýnt að halda á í dagsins önn og láta hvergi deigan síga.

Bloggfærslur 2. febrúar 2010

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

ragna@einarshusid.is

Ég er veitingamaður í Einarshúsi og sé um allt utanumhald í rekstri þess fyrirtækis. Ég er  bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og forseti bæjarstjórnar auk þess er ég fréttaritari á bolvíska netmiðlinum www.vikari.is .

Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • IMG_9631
  • Íris og Lýður
  • Bjarni kristinn
  • Halldór, Kalli og Benni
  • Íris og Lýður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.3.): 27
  • Sl. sólarhring: 166
  • Sl. viku: 603
  • Frá upphafi: 438289

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 212
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband